Til þess að skrá nýja auglýsingu/umræðu, svara auglýsingu/umræðu, taka þátt í könnun eða að fá prentvæna útgáfu af auglýsingu/umræðu, þá
þarftu að vera skráð(ur).
ingig
| 22. nóvember '06, kl: 17:40:08
| Alls sótt: 1001
Leitarvélin á barnaland.is virkar ekki fyrir umræðu flokkinn Annað
Ég þurfti að aftengja leitina fyrir umræðuna Annað inná barnaland.is,
ástæðan er að grunnurinn er orðin það stór að hann fyllir minnið á
vélinni á örfáum mínútum. Það virðist vera minnisleki sem veldur þessu.
Ég þarf að finna lausn á þessu, en ég geri ekki ráð fyrir að
það muni ekki gerast fyrr en eftir helgi. Á morgun fæ ég allann
grunninn eins og hann leggur sig og þá verður auðveldara fyrir mig að
debuga þetta vandamál.
Smá tölulegar upplýsingar um leitarvélina:
- Leitarvélin er 1.4GB
- Inniheldur yfir 2 milljón færslan
- Þetta á við um umræðuna og greinarnar og vefunum hjá okkur.
- Umræðan Annað á barnaland.is er 1.6 milljón færslur og 800 MB
ingig | Umræðu flokkurinn Annað er núna kominn inní leitarvélina. Það kom í ljós að veg...
ingig
| 22. nóvember '06, kl: 17:48:47
SV: Leitarvélin á barnaland.is virkar ekki fyrir umræðu flokkinn Annað
Umræðu flokkurinn Annað er núna kominn inní leitarvélina. Það kom í ljós að vegna þess að leitarvélin var að raða eftir dagsetningu að þá fór minnið úr böndum og hægði á öllu.
Því hef ég aftengt að hægt sé að raða eftir dagsetningu. Ég mun halda áfram að reyna að finna lausn á þessu þannig að hægt sé að koma þessu í lag.
aparass | Leitarvélin er hræðileg á þessum vef !
Nánast allt sem hún finnur er ekki hæ...
aparass
| 14. ágúst '10, kl: 23:39:28
SV: Leitarvélin á barnaland.is virkar ekki fyrir umræðu flokkinn Annað
Leitarvélin er hræðileg á þessum vef !
Nánast allt sem hún finnur er ekki hægt að skoða, færslurnar finnast ekki og þess háttar.
Ef google finnur eitthvað inn á barnalandi, þá virkar ekki síðan þegar komið er inn á hana.
Allt sem er orðið eldra en tveggja vikna virkar ekki í leitarvélinni, kemur alltaf "síðan fannst ekki, bla bla bla" þannig að stærðin á þessum gagnagrunn hjá þér er ekki til neins, gætir alveg eins limitað hann við nokkur mb.
Vefurinn er allt of mikið niðri og alltaf of hægur.
Hann virkar illa í sumum browserum.
Hann er keyrður á besta desktop stýrikerfi sem til er og alls ekki heima þar, vefir eiga að vera keyrðir á NIX kerfum. Að segja annað er eins og að halda því fram að adidas séu með bestu vaðstígvél í heimi. þeir gera bara góða strigaskó og halda sig við það.
Mæli með því að þú farir að skipta út þessu ónýta kerfi og koma með eitthað sem virkar, ég held nebblilega að þú sért ágætur skrifari en þú ert bara að nota vitlaus áhöld.