Frontur ehf.
Borgatún 29
105 Reykjavik
Iceland
info@frontur.com

Til þess að skrá nýja auglýsingu/umræðu, svara auglýsingu/umræðu, taka þátt í könnun eða að fá prentvæna útgáfu af auglýsingu/umræðu, þá þarftu að vera skráð(ur).

Smelltu hérna til þess að skrá þig

ingig | 22. nóvember '06, kl: 17:41:24 | Alls sótt: 942

Ærumeiðandi athugasemdir á netinu

Má til með að vekja athygli á þessari frétt sem birtist í dag á mbl.is. Þetta er mjög áhugavert fyrir okkur sem rekum vefþjónustufyrirtæki, blogg og fleira.

Bandarískir bloggarar og vefþjónustufyrirtæki bera ekki ábyrgð á birtingu ærumeiðandi athugasemda lesenda. Þetta er niðurstaða dóms sem féll í hæstarétti í Kaliforníu í Bandaríkjunum í dag. Kona ein í San Diego var lögsótt fyrir níðskrif á vefsíðu hennar um tvo lækna sem hún skrifaði ekki. Samkvæmt úrskurðinum er aðeins hægt að fara í meiðyrðamál við þann sem skrifaði níðið.

Fyrirtækin Google, eBay og Amazon hafa veitt konunni stuðning í málinu, en þessi úrskurður kemur þeim og öðrum veffyrirtækjum vel þar sem hann gæti komið í veg fyrir meiðyrðamál gegn þeim í framtíðinni.

Dómarar í málinu segja úrskurðinn byggðan á tjáningarfrelsislögum, en þeir breyttu fyrri úrskurði áfrýjunardómstóls í San Francisco. Því þýðir ekki að lögsækja þann sem rekur vefsíðuna eða ber ábyrgð á henni ef skrifin eru eftir lesanda. BBC segir frá því.

Fengið af mbl.is - 21.11.2006
Thor


Uppfært: 22.11.2006 23:55:13


Svara
Loka
 

Fyrirsögn Nafn Dagur Uppfært
Leitarvélin á barnaland.is virkar ekki fyrir umræðu flokkinn Annað ingig 22.11.2006 14.8.2010 | 23:39
Það kostar ekkert að gerast Er-lingur! Thor 26.1.2008
Barnaland vekur athygli í Danmörku Thor 26.1.2008
Lúkas gengur aftur? Thor 29.7.2007
RSS á vefnum ingig 24.11.2006
Barnalandskonur í Sádí-Arabíu? Thor 23.11.2006
Ærumeiðandi athugasemdir á netinu ingig 22.11.2006
Uppfærsla á vélbúnaði 9.nóvember ingig 22.11.2006
Uppfærsla á vefnum 8. nóv 2006 ingig 22.11.2006
Síða 1 af 1 síðum
1  
 
 

http://frontur.com | Notkunarskilmálar | API

© 2000-2010 frontur.com
Öll réttindi áskilin. Um fyrirtækið | S1

http://frontur.com

© 2000-2010 frontur.com
Öll réttindi áskilin. | S1